Æfa sig

 
Nú er vika frá Berlínarmaraþoninu og hvíldartímabilinu lokið. Ásta dró mig frá tölvuskjánum og út að hlaupa áðan og á hún þakkir skildar fyrir það. Ég var í góðu stuði og fann ekki fyrir eymslum í lærinu. Mér hefur kannski batnað við að Berlínarhlaupið.  Mér fannst Ásta draga mig áfram .. en henni fannst það sama og við hlupum báðar á harðaspretti, lafmóðar, snöggar með hringinn.  Fín æfing.
 
Annars er það skólinn .. búin að skrifa tvö Perl forrit í dag; buildLexicon.pl og baseTagger.pl.  og á bara eftir accuracy.pl sem mælir frammistöðu hinna tveggja. já og svo fikta í baseTagger til að ná upp nákvæmninni. þetta er skemmtilegt.  Fín æfing.
 
b
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

3 Responses to Æfa sig

  1. Óþekkt's avatar Margrét skrifar:

    Takk fyrir síðast Birna. Þú stóðst þig  vel í Berlín.  Fara stóra hluta af leiðinni á öðrum fæti. !!!Ofurkona. 
    Loksins hvíldavikan liðinn…hægt að halda áfram að æfa og finna sér ný markmið….nóg í boði fyrir maraþonhlaupara. 
     
    Kveðja,
    Magga

  2. Óþekkt's avatar Asta skrifar:

     
    hhah! Þetta var hálfgerð brunaæfing.  Hef aldrei brunað svona samfellt í 25 mínútur.  Og alveg hissa hvað ég gat.
    En það var gott að pústa eftir brekkuna á Reykjaveginum.  Næsta æfing á morgun frú.

  3. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

    samþykkt, hlaupum aftur á morgun.  Þetta er frábær hlaupamynd af þér Ásta.

Skildu eftir svar við Birna Hætta við svar