Menningar maraþon

 
Mér sýnist einna helst að ég hafi ekki hlaupið hálf-maraþon á laugardaginn. A.m.k. finn ég enga mynd af mér. Kannski hljóp ég svo hægt að ég náðist ekki á mynd. Ég náði áður óþekktum tíma, hljóp á ca 2:15 – stífelsið aftan í vinstra læri er að þvælast fyrir mér. Ég er búin að vera í nuddi og nálastungum í sumar, en skána lítið. Halli segir: Liggja á bakinu og toga öklann niður að enni í 2 mínútur. Prófa það
 
b
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

3 Responses to Menningar maraþon

  1. Óþekkt's avatar Wales skrifar:

    Ég segi nú bara eins og jógakennarinn sagði hér um árið:- Það eina sem þið þurfið að passa er að festa ekki hnén á bak við eyrun!

  2. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

     
    Engin hætta, það er rétt svo að ég komi höndunum um hnén. Ég er stirð eins og fótboltakall
    b
     

  3. Óþekkt's avatar Unknown skrifar:

    Þetta nefnilega málið.. ég er gamall fótboltakall og því enginn Olga Korbut, svo ég þekki þetta að vera stirður.  Þú verður bara að fara í Húsasmiðjuna og kaupa þér kaðal og binda um öklan og byrja að toga, þetta kemur.
     
    Takk annars fyrir stuðninginn og kommentið.  Kíktu á síðuna hjá Berki (linkur hjá mér), þar er slóð á fjölda mynda, hlýtur bara að vera þar 🙂

Skildu eftir svar við Unknown Hætta við svar