hýri Hafnarfjörður

 
Hafnfirðingar kjósa á morgun. Hvaða pæling er það að skipulagsmál Hafnfirðinga stjórni því hvort það verður virkjað á Suðurlandi? En hugsið ykkur, áður en það kom uppúr dúrnum að Hafnfirðingar ættu að kjósa um skipulagstillögurnar þá stóð til að leggja þær fram ("on display" eins og í the Hitchikers Guide to the Galaxy) og bíða eftir mótmælum. Hver ræður því hvort er virkjað á Suðurlandi? Alcan? Rannveig Rist? Og hverjir verja landið? Örfáir bændur?  Mér finnst ákvarðanatakan öll hin undarlegasta.
Ég er að lesa þjóðhagfræði og m.a. um peningamálastjórnun og spyr, hversvegna liggur svona mikið á að viðhalda þenslunni? Hversvegna þarf að fara útí enn meiri framkvæmdir sem auka þensluna, þrýsta upp verðbólgunni og viðhalda þessu fáránlega vaxtastigi.
Hver borgar ef Hafnfirðingar vilja virkja? Ég !  og kannski einhverjir fleiri
 
b
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

4 Responses to hýri Hafnarfjörður

  1. Óþekkt's avatar Wales skrifar:

    Mér þykir vera óþarlega mikil þensla í fjölda n-a í pistli þínum, frú Birna.

  2. Óþekkt's avatar Björgvin skrifar:

    Það er alveg út í hött að eingöngu íbúar í Hafnarfirði fái að ráða svo miklu um ástand þjóðarbúskaparins næstu árin.  Það er hrein heimska að líta á þetta sem lókal mál í Hafnarfirði eingöngu.  Ef ráðist verður í þessa stækkun eða nýframkvæmdir í stóriðju, höldum við sem skuldum áfram að borga verðbólgun í formi hárra vaxta og verðtryggingar.  Ég mótmæli því hástöfum og læt mér í léttu rúmi liggja þótt 240 svartstakkar Björns Bjarnasonar standi með reiddar kylfur.Fökk já!

  3. Óþekkt's avatar Asta skrifar:

    þetta er of flókin föstudagsgetraun fyrir mig.
    Segi pass.  

  4. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

     
    Getraunin er ekkert flókin Ásta mín. Þú borgar líka :]
     
    annars steingleymdi ég að vera með föstudagsgetraun, ég er á kafi í gjaldeyrisjöfnuðinum, hvað er klukkan? hvenær á ég að skila?
     
     

Skildu eftir svar við Wales Hætta við svar