Ég fékk myndirnar hans Beggó frá Héðinsfirði í sumar. Ég á sjálf engar myndir frá sumrinu, þar sem myndavélin mín er í glatkistunni. Ég henti að sjálfsögðu þeim myndum sem voru ekki nógu góðar af mér. Palli var fararstjóri, stóð sig vel strákurinn.
b
Ekki virðist hafa viðrað vel á ykkur, en mikið er landslagið samt tilkomumikið. Alpar Íslands!
Drasl spaces, leyfir manni ekki að skila eftir nafnið sitt? Þetta er bara ég, Valgerður ;]
Takk fyrir commentið frú Valgerður, einhverjir forritarar hafa komist í kóðann og skemmt commenta-hlutann, en mér sýnist hann núna vera kominn í lag.
hr/frú Alpar. Takk fyrir ábendinguna. Ég hef greinilega ekki vandað valið á myndum úr ferðinni. Veðrið í ferðinni var eiginlega of gott nema rétt fyrsta daginn. Ég bæti nokkrum góðviðrismyndum við til að sanna mál mitt
b
Haha, frú Valgerður er auðvitað ættuð úr Ólafsfirði og Alpa-athugasemdin var að sjálfsögðu frá mér líka. En ég get ekki séð að undirskriftakerfið sé komið í lag…
V.