Ég æfi og æfi til að styrkja mig fyrir "nýtt krossband" aðgerðina 3.október. Mæti í ræktina nánast daglega og sæki í mig veðrið og bæti við lóðum. Ég er alveg að hætta að vera eymingi og nýt þess, fram að því að ég verð slösuð aftur. Málið er sem sagt: "Mæta daglega". þessi færsla hefur þann tilgang einan að halda mér við efnið.
En mikið er ég fegin að ég fer í aðgerðina hér heima. Mér var sagt að í Noregi væri notað krossband úr hrossi .. eða líki .. Þetta styður orðróminn um að allt sé vont í útlandinu.
b
Á Íslandi eru notuð krossbönd úr ellilífeyrisþegum.
Ho ho, takk fyrir þetta, ég ætlaði einmitt að fara að forvitnast um hvað væri notað hér heima.
Ég er nú ekki enn orðin ellilífeyrisþegi .. þó það styttist nú í það
En eru ekki ennþá notaðar kattagarnir til að sauma þetta saman?