Skúringar

 
Hafragrautur, kaffi og ananas
 
Ég er búin að velja mér mastersverkefni. "Aðferðir við villuleit í markaðri málheild". Hrafn Loftsson verður leiðbeinandi minn. Þetta er ekki ólíkt því sem ég geri gjarna í vinnunni. Þar heitir það "Data Quality" en ég kalla það skúringar.
Ég las fyrstu greinina í fyrradag og mig LANGAR SVO að prófa að forrita þá aðferð sem lýst er þar. Langar svo .. langar svo ..  mér finnst ég gæti klárað það um helgina og ég er alveg sannfærð um að hún mun skila verulegum árangri. En ég þarf að vinna að RushHour verkefninu hjá Yngva. Forrita í C++, ég kann ekki C++, þetta verður erfið helgi (En ef ég stelst til að forrita villuleitina í perl, ég á hluta af kóðanum sem ég þarf að nota ..  og segi bara engum frá því)
Ég er ekkert skárri en krakkarnir mínir, geri bara það sem mig langar til í stað þess sem ég "ætti" að gera.  Oh well, lífið er gott og hafragrauturinn líka.
 
b
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

1 Response to Skúringar

  1. Óþekkt's avatar Asta skrifar:

    Hafragrautur og kaffi hérna megin.. síðan banani (ekki ananas)
     
    En ég er nú aðallega að tjá mig núna því mér finnst þú svo mikill NÖRD! 
    Og ég vildi að ég ætti smá af þessum brennandi áhuga á .. tja bara á einhverju. 
     

Færðu inn athugasemd