Ég verð að skrópa á aðalfundi Fram til að fara í partý með Dorrit. Það á að vígja nýja lækningahúsið við Bláa Lónið. Húsið sem fékk hönnunarverðlaunin í gær. Ég hefði auðvitað getað valið að mæta frekar hjá Fram og drekka kaffi úr plastbolla, en eftir laaanga umhugsun ætla ég frekar í koktail 
Þá er eins gott að ég verði dugleg í dag að forrita svo ég hafi tíma til að standa í þessu djammi. Hvort er skemmtilegra að læra eða djamma? humm.. hæfileg blanda er líklega best, eða eins og Laxnes gaurinn sagði: "fátt er leiðinlegra en vera sífellt að skemmta sér". Ég veit a.m.k. að ég gæti ekki skemmt mér ef námið væri í klúðri.
Nammi lykt úr eldhúsinu! Appelsínukakan er örugglega tilbúin.
Nammi lykt úr eldhúsinu! Appelsínukakan er örugglega tilbúin.
b
Hummm…. ha, kaka, segirðu?