Góð stelpa !

 
Erum við ekki alltof stillt ? Vel upp alin og góð og vön því að láta sjá um okkur og ekki hugsa. Treystum því að stóri bróðir (systir?) sjái um okkur og horfum á landsleikinn.  Við höfum brauð og leika og nennum ekki að gera neitt. Ég man þegar þúsundir kvenna gengu niður Skólavörðustíginn þegar þær voru búnar að vinna fyrir sínum daglaunum fyrir kl. þrjú.
Lögreglan fékkst ekki til að loka Lækjargötunni þ.a. ræðuhöldin fóru fram á Ingólfstorgi, þó var deginum ljósara að engin bílaumferð kæmist eftir Lækjargötunni hvort eð er. Hvað ef þetta hefði verið strákaganga? Ég tók þátt með því að rölta niðrí bæ með vinkonum mínum, án þess að mála götuna bleika. Góð stelpa! 
– – –
Ég byrjaði á þessari færslu útaf því að ég er hrædd um að ekkert verði gert í því að brotið er á starfsfólki við Kárahnjúka og víðar.
Gissur Pétursson forstjóra vinnumálastofnunar fór austur og veifaði fingri, úúúú!  AFL fordæmir vinnubrögðin .. Ráðherra boðar eftirlitsátak? Hvað gerir AFL? Það er augljóst að Vinnumálastofnun gerir ekkert, frekar en hingað til. Hvað gera fjölmiðlar? Eru allir svona "góð stelpa!" Það er vitað mál að svona hefur þetta verið árum saman. .. Svo er verið að tala um að við getum ekki gert fríverslunarsamning við Kínverja vegna þess að aðbúnaður verkafólks sé ekki boðlegur þar. Hvað með að laga til hjá okkur?!
 
b
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

2 Responses to Góð stelpa !

  1. Óþekkt's avatar Björgvin skrifar:

    Það verður ekkert gert.  Þetta fer að verða búið og þá kannski ráfar liðið uppeftir en grípur í tómt.  "Hey!  Allir farnir?  Nei sko – fáum okkur sumarhús.  Handa hundinum."

  2. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

    Ráðherra er búin að boða "eftirlitsátak" sem mér finnst hljóma til þess eins gert að kaupa tíma.
    Ég er alveg að vera svartsýnisþusari eins og þú og efast um raunverulegan vilja stjórnvalda til að farið sé að lögum. Eru öll meðul leyfileg til að hægt sé að reisa stíflu uppá heiði ?

Færðu inn athugasemd