Stjörnuspáin í Blaðinu er mitt leiðarljós:
Þér finnst þú vera kynþokkafull, örugg og við stjórnvölinn. Það er því ekki furða að allt gangi upp hjá þér þessa dagana. Njóttu þessarar tilfinningar og dreifðu gleðinni. Þú ert á toppnum núna, einmitt þar sem þú átt heima! YES!
Ha ha ha, akkúrat eins og mér líður í dag …. eða ekki.Allir öskra á mig, ég er 80 kíló og með unglingabólur og ekki byrjuð á fyrirlestrinum sem ég á að halda á morgun.
Unglingurinn! loksins komin með bólurnar.
Gangi þér vel með fyrirlesturinn elsku Vala. Ég skal tæta hann í mig fyrir þig ef þú vilt.
Ég er góð í því. Þjálfaði þingmenn :]
Er þetta nýleg mynd?kveðjaÓli Ágústar
Glæný, ég lærði að brosa svona af Americas Next Top Model :]
(tunguna uppí góminn, horfa upp, spenna hægri rassakinnina ..)
Flott. Óli Ágústar
Ég held að þú hafir verið að hugsa eitthvað um ljósmyndarann, þess vegna brosirðu svona. En hvernig stendur á því að þetta er þín stjörnuspá en ekki mín.