Hver á útsýnið?

Það tók sveitastelpuna mig ca 10 ár að læra að sjá fegurðina í kringum mig hér í höfuðborginni. Þetta eru ekki bara blokkir og bílar. Borgin er víða vel gróin, hverfið mitt er rólegt, gróskumikil tré, stílhrein hús og blá-hvítir krakkar á leið á boltaæfingu.
 
Þegar ég ek um borgina blasir náttúran víða við. Sundin blá, Esjan, Akrafjall & Skarðsheið. Útsýnið dregur upp munnvikin og ég afpanta sálfræðitímann.
 
En það er sífellt verið að selja frá mér útsýnið. Núna sé ég ekki lengur Esjuna þegar ég ek niður Kringlumýrarbrautina. Nú er búið að selja útsýnið frá reykvíkingum svo hótel geti selt það túristum.
Sama er uppi á teningnum víða á höfuðborgarsvæðinu. Sífellt er byggt hærra, byggt fyrir framan hús sem áður höfðu útsýni,

Skuggahverfið og turnbyggingarnar í túnunum eru nýleg dæmi.
Hvað um þau sem kaupa sér íbúð háu verði m.a. vegna þess að útsýnið er flott. Er bara hægt að byggja fyrir útsýnið og fella íbúðina í verði án þess að bætur komi fyrir ?

 

Hver á útsýnið ?
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

9 Responses to Hver á útsýnið?

  1. Óþekkt's avatar Björgvin skrifar:

    Tja, það er margt sem getur fellt íbúðir í verði.  Útsýnið mitt mun vera milljóna virði segja mér gestir en samt vill enginn kaupa það af mér.  Í mínu tilfelli vantar atvinnutækifæri með útsýninu.

  2. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

     
    Á hvað viltu selja stofugluggann ?
     

  3. Óþekkt's avatar Björgvin skrifar:

    Með öllu sem er neglt við hann, m.a. 220 fermetrar af gólfi, þætti mér ekki slæmt að fá 30.000.000 króna.

  4. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

     
    Ég er ekki svo háð atvinnutækifærum, nenni ekkert að vinna hvort eð er
     
    b

  5. Óþekkt's avatar Yngvi skrifar:

    En útsýnið er einskis virði nema það sé takmörkuð auðlind, þess vegna borgar enginn fyrir útsýni þar sem allir hafa útsýni.  Og að sama skapi tökum við ekkert eftir  útsýninu  fyrr en það reynir einhver að taka það frá okkur.

  6. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

     
    Þurfum við þá ekki að rukka auðlindagjald ?
     
    b

  7. Óþekkt's avatar Björgvin skrifar:

    Aha!  Þarna kom það.  Ég hóta bara að mála andskotans gluggann svartan og þá vilja allir kaupa.

  8. Óþekkt's avatar Yngvi skrifar:

    BV: Nei þú þarft að mála gluggana hjá öllum hinum.Birna: Setjum það bara í stjórnarskrána að útsýnið sé þjóðareign.

  9. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

     
    Y : Góð hugmynd. það hlýtur að vera hægt að pota þessu með stjórnarskrárbreytingunni.
     
    BV : Málaðu endilega með bleiku. Miklu sætara.

Skildu eftir svar við Björgvin Hætta við svar