Anna vinkona í Köben ók í vinnuna í morgun í gegnum þetta :
Kveikt var í ruslafötum til að mótmæla því að Ungdonshuset á Jagtvej væri lokað
Þetta lítur út eins og borgarastyrjöld! Bíllinn hennar var fullur af reyk.
Æ- það er ágætt að vera sveitó Íslandingur.
sem minnir mig á það; til hamingju með bjórinn
b
Iss þú hefur alveg misst af óeirðunum í Breiðholtinu, stríð á milli Selja- og Fellahverfis.
það var allt með friði og spekt á Blönduósi hérna í gamla daga
nema þegar Reykjavíkur skríllinn kom í heimsókn á sumrin
b
má ég leggja orð í stríðsbelginn ..
Á Vopnafirði var stríð milli innbæinga og útbæinga. Liðin stilltu sér upp með spýtur við frystihúsið (nú HB grandi) og one,two,three, allir að slást! Mig minnir að ég hafi verið innbæingur , því ég var innar í firðinum. Engar minningar um skrámur né slíkt, ætli ég hafi ekki gerst liðhlaupi mjög fljótlega.