JSB

jæja, ég keypti mér mánaðarkort í JSB og mætti í tækjatíma áðan með ítarefni úr Þjóðhagfræðinni.
Það er ótrúlegt hvað er hægt að skrifa mörg orð um þjóðhagfræði; Alþjóðaviðskipti, gengi, viðskiptajöfnuður, hagsveifla, heildarframboð, peningamálastefna . Nú stendur til að mæta á morgnanna (bara létt) og svo aftur á kvöldin (líka létt – best að fara vel með sig til að fæla sig ekki frá).
Svo þegar kjarkurinn og fyrra þrek er komið aftur heim í hús, (og þessi leiðinda lungna þemba farin) þá er það karate og hlaup. Dat’s mí!

Mig langar í hvítan bol með bláum stimpli "EIGN ÞVOTTAHÚSS SPÍTALANA"

b

Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

2 Responses to JSB

  1. Óþekkt's avatar Sif skrifar:

    Hæ Birna !
    Ertu búin að skipta um félag í karate.
    Hef ekkert séð þig á æfingum síðan á síðasta ári !
    Kveðja Sif

  2. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

     
    nei, nei, þetta er einfaldara en svo. Ég hef bara ekkert mætt.
    Nú er ég farið að æfa hjá JSB til að koma mér í stuð f karate
    tek því bara rólega, því lungun í mér hafa ekki verið að virka uppá síðkastið
    endemis heilsuleysi
     
    b

Skildu eftir svar við Birna Hætta við svar