Ég sofnaði í gær og missti af fyrirlestri hjá Anders .. damn! svo svaf ég í 15 tíma í nótt ! hvað er í gangi !?!?!
Í dag ætla ég að gera allt sem ég hef hundsað undanfarið, henda í þvottavél, fara með flöskur og blöð í Sorpu, redda einhverju fyrir gluggann hjá Eydísi og gera eitthvað í peningamálunum, 1500kr duga ekki lengi á einu heimili. Aumingja Eydís er komin með peningaáhyggjur en ég er alveg sali-róleg yfir þessu.
Þetta reddast maarr!
b
Ég tók fatalán og finnst ég vera agalega rík núna! Ætla reyndar að eyða því öllu í London í næstu viku, en það er til fullt af hafragrjónum heima og frosnum berjum til að hafa með svo maður fái nokkur viðbótarvítamín. Þú ert ávallt velkomin í graut 😉
Vala
takk \’skan :]
Hvað ertu að fara að gera í London (annað en að eyða fataláninu) heimsækja bóður sinn .. ?
b
Bróðir sinn býr nú í Köben, en ég ætla að hitta Leó og drottninguna og skoða London og heimsækja nokkrar krár.
Verst að ég álpaðist til að nota fatalánið til að borga húsnæðislán í gær … oooh.
V.