Nýtt líf. Frábært að vera í Mörkinni, fallegt að vera og skemmtilegt að vinna. Mikið um að vera en rólegt inná milli.
Ég er mikið að þvælast á FORD 7830 útí Krossá að leiðbeina rútum og jeppum. Mitt markmið er að veita bílstjórunum fullkomna öryggistilfinningu. Gott fyrir bissnisinn að menn séu ekki órólegir.

Spjalla við túrista um gönguleiðir, reka sjoppu, skúra og flagga og hella uppá kaffi fyrir bílstjóra og fararstjóra – og bara almennt séð, vera dugleg að brosa. Nýtt fólk á hverjum degi. Ágæt æfing fyrir frú Ómannglögg.
Krakkarnir voru hjá mér í viku, Þau stóðu sig glimrandi í sjoppunni. Baldur hækkaði bara verðið þegar eftirspurnin jókst! þau fóru í gærmorgun með Palla.
Ég saknaði þeirra allra svo mikið að ég stakk af seinnipartinn í gær og fór á puttanum í bæinn. Skildi Sonju eina eftir á vaktinni. Það var hvort eð er lítið bókað í gær og í dag.
Svo var ég líka komin með svima af þreytu. Sonja var í afleysingum í Hrafntinnuskeri og ég ein í vinnunni undanfarna viku og alveg pakkað af fólki og Krossá var með eitthvert vesen svo að ég þurfti að vera meira og minna á ferðinni með traktorinn. Fór með nokkra bíla yfir Steinsholtsá í gær. hefði þurft að vera á 3 stöðum í einu.
En þetta bjargaðist allt, og bara ágætlega held ég. Palli er ánægður með mig, en hann er kannski hlutdrægur :]

Anna vinkona kom í heimsókn með krakkana síðustu helgi. Jón Axel var óstöðvandi með sláttuvélina. Hann er núna kominn í vinnu hjá FÍ.
Laugavegshlaupið er um næstu helgi .. það verður eitthvað skrautlegt. Sonja segir að Hrafntinnusker sé á kafi í snjó ennþá og á leiðinni þurfi að ösla snjóinn uppá miðja leggi. 55km er erfiðir í sjálfu sér.. en í svona færi =:-|
b
Þetta er agaleg mynd… það sést næstum því ekki hvað þið eruð fallegar! En það eruð þið, og mikið hlakka ég til næsta kaffibolla hjá ykkur í Mörkinni.