Jæja, búin að pakka fyrir Mörkina. Alltaf jafn ótrúlega mikið af dóti og mat og breytir nánast engu hvort við erum í lengri eða skemmri tíma. Að þessu sinni er það skemmri tími. Fótbolti / vinna ..
Nú á ég bara aaaðeins eftir að klára smá í vinnunni áður en ég er góð. Þetta er ávani, að vinna alltaf nóttina áður en ég fer í frí. Eins og að mæta 5 mín of seint í karate. Bara ávani.
Beggó ætlar að lesa með mér fjallabókina, búa til tékklista. Við erum sammála um að Birnudalstindur sé eiginlega möst.
Ohhh, ég hlakka til að sofa í tjaldinu mínu !
Hæ Hæ Hafðu það gott í fríinu og njóttu nú náttúrufegurðarinnar í mörkinni, ég öfunda þig ekkert að vera fara þangað ;o)Við sjáumst hressar og endurnærðar í lok ágúst.kv. Bjagga