ruv

 
Ég þakka fyrir sjónvarpsdagskránna. Hún truflar mig ekki frá náminu.
 
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Aðhald í rekstri

 
Ég sé að kreppunnar gætir víða. Kaffimálin í Hreyfingu hafa minnkað um helming.
 
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Styrkur

 
Ef sjávarútvegur er svona arðsöm og sterk atvinnugrein, hversvegna er hún þá styrkt af ríkinu? Ríkissjóður tekur þátt í að greiða laun í sjávarútvegi í gegnum sjómannaafsláttinn. Ég heyri eiginlega aldrei talað um það. Skrifa bara "hagsmunaaðilar" um sjávarútveg?
 
 
b
Birt í Uncategorized | 6 athugasemdir

Dagfinnur

 
Friðrik er að hætta sem forstjóri Landsvirkjunar. Ætli það sé þá satt að dýralæknirinn Árni Matt fái þann stól fyrst honum tekst ekkert að lækna hagkerfið. Verður hann þá Lands-læknir?
 
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Alltaf fjör á FL

Hér er Videó 2 um FL group

 

 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Ljós í myrkri

 
Ég datt inná ótrúlega Smart heimasíðu. Sá sem gerði þetta kann að skemmta sér í vinnunni! (Tekur smá tíma að hlaðast inn). Prófið t.d. að smella á Verðskrá. Við í félagi tölvunarfræðinga erum einmitt að uppfæra okkar síðu. Ég geri þá kröfu að hún verði a.m.k. eins flott.  Ohh damn, nú fattast að ég ætlaði í ljós
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Olía á eld

 
Innflutningur ætti að vera að minnka og minnka, en nei, nú er flutt inn 3xmeira af olíuvörum en í venjulegum mánuði. Var kannski aldrei keypt bensín á háa heimsmarkaðsverðinu?
 
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Se & hör

 
Ég frétti að Beggó bróðir væri í séð og heyrt, með nýja Lillann (bílinn) sinn.
 
Ég reikna ekki með að það komi í neinu blaði þegar ég tek við nýja bílnum mínum í kvöld :] en það verður gaman. Ég hugsa við Eydís skreppum útí ísbúð.
 
b
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Nú er það svart

 
Hvenær byrjar CERN tilraunin? 10.sept? Verður jörðin þá gleypt af svartholi? Forvitnilegt .. 
Skemmtilegt að hugsa um hvað allt sem maður er að bauka er tilgangslaust, ef það eru bara 2 vikur eftir. Borða hollan mat.. ala börnin upp ..  bæta gæði gagna, skrifa fundargerð.. blogga ..
 
 

 

b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Menningar

 
Ég vaknaði fyrir allar aldir menningar-daginn til að fylgjast með þessu fólki sem má hlaupa. Ég hef eiginlega aldrei horft á, alltaf hlaupið með. Fyrst ’87  7km, algerlega óæft og þurfti að ganga spotta og spotta. Sumarið ’91 æfði ég undir stjórn Gunnar Páls Jóakimssonar og komst þá í mitt besta form síðan ég keppti á ungmennafélagsmótunum í gamladaga. Það sumar hljóp ég mitt fyrsta hálf-maraþon. (Eini sæmilegi tíminn sem ég á) Mikill persónulegur sigur, endasprettur og allt. .. já já nóg um það, ég ætlaði að skrifa um hlaupið á laugardaginn.
 
Hef aldrei skilið hvernig nokkur nennir að horfa á maraþonhlaup. Í London er mannfjöldinn eins og móttaka silfur-stráka alla leiðina. Lúðrablástur og læti. En <aftur komin útaf sporinu> . . það var svo gaman að horfa á allt þetta fólk hlaupa! Hver og einn að sigrast á sjálfum sér, yfirvinna letina, sigrast á nýrri vegalengd, nýjum tíma. Ég fékk hetju-andakt í hjartað. 
 
 

Ég hjólaði útá nes og beið eftir þeim sem ég átti von á að sjá. Ég rýndi í hópinn mínútum saman og stundum sá ég einhvern sem ég átti hreint ekki von á eða einhver kallaði í mig og veifaði. Það er alveg greinilegt að ég hef ekki face recognition processing power (manngleggni) í svona lagað. Það var erfiðara fyrir mig að horfa en hina að hlaupa! Hrefna stökk framhjá eins og hind, með fystu mönnum. Arnar og Arnór hlupu í takt, mér skilst þeir séu búnir að vera að æfa saman og háðu einvígi ársins á marklínunni. Arnar sagði mér niðrí bæ að hann hefði bætt sig um 28 mínútur! Geri aðrir betur. Ég náði mynd af Yngva, enda stoppaði hann til að pósa en Ásta hljóp eins og vindurinn þ.a. ég sá hana aldrei.
 
Eftir að horfa á allan þennan hlaupa-dugnað fékk svo mikla æfinga-öfund að ég fór í ræktina og lyfti í 1,5 klst og svo heim og steinsofnaði.
 
 
 
Ég keypti mér bók* í rauðakross búðinni á menningarnótt (smá menning á 50kr.)
hún hefst á þessum orðum "Ég stökk á eftir strætó .."  en svona hefst einmitt "Íslenska orðtíðnibókin" sem er grunnur málvinnsluransókna á Íslandi.  Greinileg áminning frá æðri máttarvöldum um að gera eitthvað í málvinnsluverkefninu hjá Hrafni.
 
*Þessi menningarlega bók er "mín káta angist" eftir Guðmund Andra Thorsson
 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd