Áramóta-heit

Ég hef aldrei strengt áramótaheit, en það má líta svo á að London-maraþonið sé heit ársins. Til upphitunar hljóp ég í Gamlárshlaupi ÍR (sjá sönnunargagn #1:  http://hlaup.is/photogallery.asp?cat_id=333&page_id=1&photo_id=6161) á tímanum 53:20. Maður hefur séð það svartara. Ég var bara rétt á eftir Pétri og Oddi og Vöndu Sig. og kom í mark samtímis Sif Arnars úr karate-inu. Hlaupið sjálft var létt, veðrið gott og formið ágætt. Það var lang-erfiðast að koma sér framúr og útúr húsi rétt áður en skráningu lauk. Ég gleymdi að borga fyrir skráninguna í öllum asanum. Bjarni Ármanns var á 45 mín og talar um að fara næsta maraþon á 3:30 (öfund öfund) við í SPK ættum að senda sveit í næsta Reykjavíkurmaraþon.
 
Áramótaveislan
Ég var búin að lofa Agnari bróður að hjálpa honum við veislu undirbúninginn og mæta snemma. Ég stóð ekki við það, algerlega í slow-motion eftir hlaupið .. b a a a ð …. k a f f i … aðeins að leggja sig .. en ég bakaði súkkulaðiköku í eftirrétt og braut servíetturnar. Pabbi var búinn að leggja á borð og þetta var allt mjög fínt hjá þeim og maturinn æðislegur. Edda klikkar ekki á því.
Agnar lét okkur svo fara í stóladans á eftir.. hvað verður næst !!? Skolli ? Flöskustútur ? Svo dönsuðum við inní nýja árið .. twist & shout !
Ég gleymdi bæði varalitnum og myndavélinni.. kannski þreyttari eftir hlaupið en ég vildi viðurkenna.
 
b
 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

X-mas report

Christmas, just the way you want it (I took some extra days off work to enjoy the laziness)
Home / family / book / food / chocolate – Christmas
My brother Beggó and Mom & Palli came over for dinner on the 24th. Beggó, the artist, made ptarmigan hors-d’oeuvre and mom brought a delicious Waldorf salad but me and Eydis smoked lamb and rice pudding. Baldur played the piano and Tinna darling, moms dog left hair all over the apartment. I still find hair even if I’ve cleaned three times :] but she is lovely. She is getting old and arthritic poor wretched thing. Even so she did a good job finding her own gifts of kickshaws. On Christmas day we all gathered at my mothers place for a delicious dinner and company (and a little nap over a book).
I’ve been sooo extremely lazy at work. Only show up for a half day at a time and skipped karate on Tuesday. Still haven’t captured that life hasn’t come to a halt in bed with Eydís a book and a bowl of candy

 

Marry Christmas everyone !

Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Eðlusnafs

Það bregst ekki að ef ég bregð mér í mat til Odd Stefáns á undan karate-partý þá kemur kvöldið skemmtilega á óvart !  Kannski er það eðlu-snafsinn sem gerir þetta… en ég er farin að trúa því að einungis skrítið fólk fari í karate. Ekki eins og fólk er flest (fjúff maður) 
Hmmm. Þegar vel er að gáð þá eru ekki ýkja margir eins og fólk er flest.
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Amma 80 ára

Hún hélt uppá afmælið á Króknum. Hún lítur vel út sú gamla.
Boðið var afskaplega myndarlegt eins og þeim mæðgum Ömmu, Huldu og Ninný er von go vísa. Hangikjöt á línuna með öllu meðlæti og kökur og konfekt með kaffinu. Ég gleymdi næstum því að taka myndir, en Bjössi sendi mér 3 úr símanum sínum. Nokkuð góðar !
Það var gott að koma norður og sjá þetta fólk sem maður sér svo sjaldan. Ninný sem ég segist alltaf vera að fara að hitta :> og sjá litlu stelpurnar hennar Lilju. Einar og Bryndís á Mosfelli og Bjössi tók Fjölni litla með sér.
Ég og krakkarnir fengum far með mömmu og Palla. Ég held svei mér þá að þetta sé í fyrsta skipti í 10 ár sem ég keyri ekki sjálf þegar farið er norður. Ég dottaði í aftursætinu báðar leiðir. Yndislegt ..
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Skápur3

Ég er búin að skipta um þröskuld og alveg að
verða búin að leggja flísarnar á forstofugólfið.
Svo kemur smiðurinn og setur upp skápinn í fyrramálið.
 
þá get ég farið að hlakka til jólanna :>
 
… úfff, það gengur ekki nógu vel að brjóta stóru flísarnar ‘:-|
ég ætla að fara með afganginn í Húsasmiðjuna og biðja þá um að saga þær fyrir mig
 
b
 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Rautt belti

 
Jæja, ég er komin með rautt belti í karate!
 
jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei, jibbíjei, jibbijei, jibbijei
 
b
Birt í Uncategorized | 3 athugasemdir

Mætingarkröfur

Heimasíða Þórshamars segir að mín mæting sé :
Mæting síðustu 4 vikur  : 100 %
Mæting síðustu 8 vikur  :  59 %
Mæting síðustu 12 vikur :  62 %
Mæting síðustu 16 vikur :  55 %

og Inga segir : "hún er búin að sýna lit á þessari önn með mætingu og staðið sig betur en síðustu annir. Kannski í lagi að leyfa henni að mæta í gráðun"

Glæsilegt ! Ekki búin að mæta eins illa og venjulega þ.a. ég fæ að fara í gráðun :>

Verst að ég er með svo mikla strengi eftir bootCampið á þriðjudaginn að ég get varla lyft handleggjunum. Hvernig geri ég þá Heian Nidan ??

b

Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

gráðun eftir 2 daga

Úff, nýkomin af 2ja tíma karateæfingu. Gráðunin er á fimmtudaginn. Það eru líkur á að ég komist í gegn, en vá! margt mætti betur fara. (syngið með) "Við gefumst ekki upp þó móti blási."
Mér finnst ég vera búin að læra Heian Nidan en ruglaðist svo í hlutum sem ég var alveg komin með á hreint. Sjáum til. Mest um vert að halda einbeitingu í gráðuninni sjálfri.
Verst hvað þessir nágrannar fara snemma að sofa. Ég get ekki unnið í forstofunni eftir kl 10. Þyrfti að taka mér frí eftir hádegi á morgun til að klára. Það er ekki svo mikið eftir.
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Woyzeck

Við Vala og Hemmi ætlum á  Woyzeck í Borgarleikhúsinu á föstudaginn (í samstarfi við Vesturport)

http://www.borgarleikhus.is/default.asp?page_id=5709

Sitjum á 2.bekk, þá orrkar verrkið sterrkar á okkur

 

b

Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Skápur2

ok, búin að slípa, sparsla mála, (og á eftir að gera annað eins.. )
Flísarnar eru farnar ! Ég verð að viðurkenna að það óx mér í augum að brjóta þær af, en þegar til kom var það ekkert mál. Tók kannski hálftíma. Fékk lánaða litla brotvél hjá bjössa bróður.
Næst skipti ég um þröskuld og klára slíp / sparsl / máln og að endingu legg ég nýju flísarnar.
Þá má smiðurinn koma ..
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir