Hors de Prix

 
Mér finnst skemmtilegast að fara í bíó án þess að vita á hvaða mynd ég er að fara.
 
Fyrsta myndin sem ég sá þannig, var Silence of the lambs. Við Anna mættum alltof seint (aldrei þessu vant) og völdum einhverja rómantíska sveitamynd. Ég er enn að jafna mig.
 
Einusinni ætlaði ég á Der Untergang (Hitlers myndina) en það var uppselt og eina myndin sem hægt var að fá miða á var "I Heart Huckabees". Það var mikil lukka. Mér hefði aldrei dottið í hug að fara á hana að sjálfsdáðun.
 
Í kvöld fórum við á eina franska Hors de Prix sem þýðir kannski "á tímakaupi" ?  (en ég kann ekkert í frönsku). Hún er skemmtileg. Baldur var hæstánægður með *kjólana*.
 
Nú erum við að horfa á aðra franska á RUV.  Nýta skattana ..
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Árangurstenging launa

Ég vil láta árangurstengja laun þingmanna og ráðherra.
Kauptrygging (t.d. meðaltal af örorku- og atvinnuleysisbótum) væri látin duga Þegar kemur í ljós að lög sem stimpluð eru frá Alþingi halda ekki vatni. Sannað er að forsvarsmenn olíufélaganna nenntu ekki að standa í samkeppnisrekstri og ákváðu að níða ekki skóinn hver af öðrum heldur þjóðinni allri. Samkeppnislögunum var ætlað að hindra slíka samvinnu. Þau dugðu ekki til sakfellingar. (En ætli það sé ekki erfitt fyrir jakkafatakalla eins og á myndinni hér f. neðan að senda aðra jakkafatakalla í fangelsi ?)
b
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Atvinnuvegir

Fréttablaðið í gær segir eitthvað á þessa leið (á bls.24)
"Landbúnaður leggur til um 1,5% landsframleiðslunnar en hefur sér ráðuneyti, net stofnana og háskóla. Á sama tíma gefur hátækniiðnaður um 4% landsframleiðslunnar og ferðaþjónusta 5% án þess að sérstaklega sé tekið á málefnum atvinnugreinanna."
Mér flýgur í hug hvort það sé nánast vegna þess að landbúnaður hefur sér ráðuneyti. Þaðan er framleiðslunni handstýrt og miðstýrt með aðferðum sem afsönnuðu sig á síðustu öld. (mér er ekki sérlega illa við bændur)
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Föstudagsgrínið

 
Stýrivextir í Japan eru nú 0,5% og hafa ekki verið hærri í áratug.
 
hahahahhahahhaa
 
 
Föstudagsmyndagetraunin
 
Mynd Fréttablaðsins af ríkisstjórnarfundi. IF þú sérð mynstrið THEN ég splæsi bjór
 
Birt í Uncategorized | 7 athugasemdir

ólöglegt morð

 

Bandarískir hermenn brutu lög þegar þeir skutu breskan hermann – á mbl.is

Árans klúður
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Stelpurnar okkar

 
Íslenska fótboltalandsliðið sigraði Kínverja 4-1. Til hamingju stelpur! Til hamingju Ísland.
 
hvað ætli myndin framaná Fréttablaðinu hefði verið stór ef þetta hefðu verið strákarnir ?
nei, ég segi bara svona …
 
b
Birt í Uncategorized | 4 athugasemdir

Hver á útsýnið?

Það tók sveitastelpuna mig ca 10 ár að læra að sjá fegurðina í kringum mig hér í höfuðborginni. Þetta eru ekki bara blokkir og bílar. Borgin er víða vel gróin, hverfið mitt er rólegt, gróskumikil tré, stílhrein hús og blá-hvítir krakkar á leið á boltaæfingu.
 
Þegar ég ek um borgina blasir náttúran víða við. Sundin blá, Esjan, Akrafjall & Skarðsheið. Útsýnið dregur upp munnvikin og ég afpanta sálfræðitímann.
 
En það er sífellt verið að selja frá mér útsýnið. Núna sé ég ekki lengur Esjuna þegar ég ek niður Kringlumýrarbrautina. Nú er búið að selja útsýnið frá reykvíkingum svo hótel geti selt það túristum.
Sama er uppi á teningnum víða á höfuðborgarsvæðinu. Sífellt er byggt hærra, byggt fyrir framan hús sem áður höfðu útsýni,

Skuggahverfið og turnbyggingarnar í túnunum eru nýleg dæmi.
Hvað um þau sem kaupa sér íbúð háu verði m.a. vegna þess að útsýnið er flott. Er bara hægt að byggja fyrir útsýnið og fella íbúðina í verði án þess að bætur komi fyrir ?

 

Hver á útsýnið ?
Birt í Uncategorized | 9 athugasemdir

Svona er lífið

 
Eggjakaka í vöfflujárni – svona getur lífið verið gott og fallegt
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

heift

 
Sóley Tómasdóttir telur viðmælendur í einum sjónvarpsþætti og yfirlýsingum rignir yfir hana.
Hvaðan kemur þessi heift ? Ég ætti kannski að stúdera sálfræði í stað tölvunarfræði.
Haha, Nei djók. Ég spyr frekar einhvern.
 
b
 
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Eydís skrifaði sögu :

Klipp-klikk!
Þegar ég var yngri fannst mér alveg æðislega gaman að leika mér með skæri. Ég klippti allt sem ég sá; pappír, barnabækur, gömul föt, hár af dúkku, nær allt sem ég komst í. Ég var nú ekki komin útí það að klippa í sófa eða rúmföt, var meira bara með litla og saklausa hluti.
En einn daginn var ég búin að klippa allt sem mér datt í hug. Moggann í dag, sjónvarpsdagskrána, strokleður. Mig langaði að prófa eitthvað nýtt. Tók ég þá eftir þessum gríðarlega hárlubba sem var á hausnum mínum og fannst mér ég þurfa að gera eitthvað í honum. Mundi ég þá hvar hún móðir mín geymdi skærin sín.
Hljóp ég strax inná salernið á efri hæðinni, opnaði skúffu og þar blöstu þessi rándýru "prófessional" skæri. Tók ég þau upp og hófst handa. Duttu niður á gólf dökkir lokkar. Ég hélt áfram en steinhætti þegar ég heyrði að mamma og pabbi voru komin heim. Hljóp ég inní herbergið mitt og þóttist vera grátandi. Heyrði pabbi þá í mér, hljóp upp og spurði hvað væri að. Sagði ég þá að stóri bróðir minn sem átti að fylgjast með mér hefði klippt af mér hárið. Bankaði pabbi þá hjá honum og spurði hvort það væri satt. Neitaði hann að sjálfsögðu. "Hún hefur gert það sjálf" sagði hann. Pabbi leit á mig og þá viðurkenndi ég. Daginn eftir fór mamma með mig í klippingu og enn þann dag í dag er ég með sömu klippinguna!

Eydís Blöndal á samræmdu íslensku prófi í 7.bekk

Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd