Naglinn

 
Mmmmm, almáttugurminn hvað er hægt að búa til góðan mat úr nánast eingu.
Ég ætla að skrifa sögu um þetta.  Ég læt hana heita .. Naglasúpan!  Já, það er gott nafn.
 
Það minnir mig á að við Eydís áttum einu sinni forláta nagla sem við notuðum til að bæta kjötsúpuna
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Aki Kaurismaki fimmtugur

 
Finnski kvikmyndagerðamaðurinn Aki Kaurismaki á afmæli í dag. Kallinn orðinn 50 ára.
Ég sá "The Man Without a Past" eftir hann, með krökkunum. Stórkostlega fyndin og falleg. Við vitnum ennþá í myndina. (með finnskum hreim) "Þú ert heppinn, flestir deyja núna".
 
Birt í Uncategorized | 5 athugasemdir

Hlutverkaskipan

 
minningar úr matsalnum:
Hversvegna vinna allar (giftu) konurnar í tölvudeildinni 70% vinnu?
– Vegna þess að þær eru ábyrgar mæður
En hversvenga vinna allir kallarnir 100% vinnu? Eru þeir ekki ábyrgir feður?
– Þeir eru ábyrgir framfærendur
b
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Æ no si

 
Ég held ég skilji ekki lengur íslensku. Ætla þau SAMT að stækka álverið ??
 
Svo er líka verið að undirbúa byggingu álvers í Þorlákshöfn, "Áltæknigarð"  flott skal það vera. Mér skilst á Pétri að Davíð Blöndal leggi þar hönd á plóginn. Ég man ekki eftir að hafnfirðingar hafi fengið að kjósa um það.  Landsvirkjun kannast ekki við að ætla að leggja til orkuna, þ.a. Orkuveitan heldur áfram að gata heiðina áður en hafnfirðingar fá ráðrúm til að prenta nýja kjörseðla.
Mamma var nýbúin að uppgötva þessa útivistarparadís sem Hengilssvæðið er, þegar svæðinu var rústað. "Hver leyfði þetta!?" spurði hún .. og ég.
 
Hvernig eru ákvarðanir um álver og virkjanir teknar þegar hafnfirðingar eru ekki spurðir?
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Forboðinn ávöxtur

 
Ég skrapp Hagkaup að kaupa í matinn og keypti m.a. 4 epli, en þegar ég renni augunum yfir strimilinn sé ég að ég borgaði 599 kr. fyrir 4 epli !!?!? Bíddu, er ég bara hálfviti að kaupa 4 epli þegar ég sé finn ekki verðið í fljótheitum ??
Svo er ég búin að borða 3 af þessum eplum án þess að sýna þeim 150kr. lotningu.
Mér finnst sá sem verðlagði þennan forboðna ávöxt hafa sýnt djörfung .. mikið hugmyndaflug.
 
b
 
Birt í Uncategorized | 3 athugasemdir

helgi

 
Jeminneinasti! nú er verið að rannsaka hvort páfinn hafi verið helgur maður!
Verið að reyna að grafa upp sögusagnir um kraftaverk og geislavirkni.  Meira ruglið.
Er ekki allt fólk heilagt? Er gamall kall með fyndinn hatt heilagri en aðrir.
Endemis sleikjuháttur gagnvart valdi og peningum. Tekur þetta einhver alvarlega?
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

út að hlaupa

 
Vala er búin að skrá mig í labbitúr á hnjúkinn og svo er ég skráð í Berlínarmaraþon í haust, kannski kominn tími til að æfa sig ..
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Lestur Fréttablaðsins

 
"Það er mjög fín mynd af þér í Fréttablaðinu í dag"
 
Mikið djö. féll ég fyrir þessu! og til að hefna mín, sendi ég samskonar skilaboð á nánst alla sem ég þekki. hohoho – lestur Fréttablaðsins hefur stóraukist
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Grímur Gíslason

 
Öndvegismaðurinn Grímur Gíslason er látinn. Hann bjó uppá brekku eins og við og sparaði okkur krökkunum ósjaldan sporin og skutlaði okkur í skólann. Ég kenndi einni afa-stelpunni hans á Húnavöllum, önnur keppti með mér í frjálsum og sundi. Í minningunni heita þær allar Sesselja. Grímur var góður vinur, fróður og skemmtilegur. 
Blessuð sé minning hans.
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Stækkun álversins í Straumsvík hafnað

 
Mér líst æ-betur á að láta hafnfirðinga sjá um að kjósa.
Nú fer kannski að líða að því að virkjanaákvarðanir verði teknar í sátt við þjóðina
og í kjölfarið jafnvel fleiri ákvarðanir.  Til hamingju Ísland
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd