Hver er sinnar gæfu smiður ?

 
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Euro

Skemmtileg þessi Eurovision umræða, (er að tala við Bjössa bróður í Danaveldi)
"Austantjalds þjóðirnar kjósa okkur útaf borðinu.!"   
"Þau eru með alltof mörg atkvæði! "
En svona er lýðræðið. Ég gæti líka kvartað undan því að Framsóknarmenn allra flokka hafi of mikið atkvæðavægi. Austurblokkin er líka hluti af Evrópu. Kannski viljum við bara að þau séu betlarar sem við getum "hjálpað" en séu ekki að keppa við okkur. Hvorki um Eurovisionsæti né atvinnu.
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Hjólastólastuð

 
Þið verðið að kíkja á þetta .. brilljant tónlistarmyndband. Wheels on the block. 3 strákar í hjólastólum, textarnir eru alger snilld.
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Úrslit

 
Jæja, Eiríkur komst ekki áfram. Þá þurfum við bara að hafa áhyggjur af einum kosningum á laugardaginn.
 
Mikið er þetta allt saman tæpt núna. Mér finnst vera kominn tími á breytingar og krossa fingur. .
Kaupmáttaraukning skiptir máli þegar hún verður hjá þeim sem á þurfa að halda. Hagvöxtur sem skilar öðrum jeppa heim á hlað er einskis verður. Ríkisstjórnin hefur ekki séð til þess að ávinningurinn skili sér í tómu vasana, heldur haldið áfram að troða í hina.
 
Ég kaus Samfylkinguna útaf velferðarmálunum. Mér finnst skipta ollu máli að krakkarnir eigi möguleika á góðri menntun og framtíð sama hverjir foreldrar þeirra eru. Alkóhólistar / alþingismenn / öryrkjar / bankastjórar / útlendingar .. að börn þeirra geti átt góða framtíð.
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Teljari

Þessi telur hvern aðeins einusinni

Þessi á að fylgjast með fjölda innlita

 
(ég bætti honum við seinna, ekki mikið vit í þessu en lagast með tímanum .. )
Birt í Uncategorized | 7 athugasemdir

vinna

 
Ég held ég sé komin með vinnu í sumar eða lengur. Hjá Kaupþingi. Ég gleymdi reyndar að segja honum að ég vann hjá Kaupþingi ’88 þegar fyrirtækið var kallað okurlánafyrirtæki. Núna lána þeir út á sömu vöxtum og heitir banki.
Ég held ég hafi nefnt of lága tölu. Hann var fljótur að samþykkja. Mitt framlag til launamunar kynjanna.
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Búin !

 
Jæja, ég er búin að kjósa. Best að klára þetta bara, þá get ég farið útúr bænum á laugardaginn, gengið á Esjuna (vá, voða langt útfyrir bæinn) eða hjólað á Þingvelli eins og síðast þegar Solla sæta vann.
Svo fer ég í atvinnuviðtal á morgun .. ef ég fæ þá vinnu, þá fæ ég laun, en mig vantar hugmyndir að masters verkefni, félagsskap, gögn sem gagn er að .. sjáum til.
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Millitímar

Mér finnst full ástæða til að taka millitíma akkúrat núna, þar sem ég er í forystu
2,2%  Birna
2,1%  Vala
1,9%  Anna
1,2%  Magga
1,1%  Ásta
0,6%  Yngvi
0,0%  Hemmi (nýbyrjaður)
sem sagt ég er að sigra og Yngvi, þú ert að tapa ..
 
Birt í Uncategorized | 3 athugasemdir

Gjafmildi

Nú gefa ráðherrar peninga hægri vinstri til að komast í fréttirnar fyrir manngæsku sína. Nær væri að þessir peningar kæmu beint úr kosningasjóðnum flokkanna, frekar en að ríkissjóður standi þeim galopinn að ausa úr í kosningabaráttunni.
Þetta minnir mig á þegar stjórn Lífeyrissjóðs Austurlands gaf úr sjóðum félagsmanna til Súðavíkur eftir snjóflóðið. Þeir hefðu getað verið grand á því og gefið sín eigin stjórnarlaun.
Hmmm, kannski ekki alveg sambærilegt, en sama lykt.
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

SÁÁ ekki fyrir kellingar og homma?

 
Ari Matthíasson framkvæmdastjóri hjá SÁÁ var heldur betur tekinn með all niðrum sig í Spurningu dagsins í Fréttablaðinu. SÁÁ fékk kosningavíxlil uppá 80 milljónir og Ari var í kjölfarið spurður hvort skálað hefði verið í kampavíni eftir undirritunina.
"Nei, er það ekki bara fyrir kellingar og homma."
Ætli hann átti sig á því að ráðherrann sem skrifaðu undir þennan samning er kelling? Ætli þjónusta SÁÁ sé ekki fyrir kellingar og homma? Æ, ég fer bara í Mótorsmiðjuna ef ég verð alkóhólisti.
 
b
Birt í Uncategorized | 3 athugasemdir