Fótspor

 
Á http://myfootprint.org/ má reikna út hvað maður kostar jörðina og hvernig er hægt að bæta sig.
 
CATEGORY

GLOBAL HECTARES

FOOD

1.4

MOBILITY

0.4

SHELTER

1.4

GOODS/SERVICES

2.1

TOTAL FOOTPRINT

5.3
 
IN COMPARISON, THE AVERAGE IN YOUR COUNTRY IS 9

IF EVERYONE LIVED LIKE YOU, WE WOULD NEED 2.9 PLANETS.

þar höfum við það

Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Gular rósir

 
Mig langar til að gefa Ingibjörgu Sólrúnu gular rósir. 

 Gular rósir standa lengi, eins og hún hefur staðið ölduna, allan þennan tíma
 Gular rósir eins og sólin.
 Gular rósir því allir á heimilinu eru örugglega komnir með ofnæmi fyrir rauðum.

Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Laus við Guðna Ágústsson

 
Kári Harðarson skrifar skemmtilega um landbúnaðarmál. Mikið vona ég að landbúnaðarráðherra nýju stjórnarinnar verði ekki Framsóknarmaður.
 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

4.flokkur Fram að verða Reykjavíkurmeistarar

 
Stelpurnar í 4.flokki Fram eru einum leik frá því að sigra á Reykjavíkurmótinu í 7 manna bolta.
Þær burstuðu Víking 6-0 í Egilshöllinni í gær og vóóó hvað þær eru orðnar góðar, glæsilegt spil og knatttækni. Markagræðgin er loksins vöknuð í þeim. Eydís englabossi hélt hreinu og fékk ís að launum. (hún samdi af sér, ég hefði verðlaunað hana mikið stærra).
Ef stelpudruslurnar vinna síðasta leikinn þá er sigurinn þeirra. Þær rokka feitt. Íris brenndi flottast af, þrusaði 2x í slánna, nákvæmlega eins, en bætti fyrir með stórglæsilegu marki. 
Markaskorarar
Áslaug 3
Jenný 1
Íris 1

Elva 1

Úrslit ráðast á Fram vellinum á sunnudag. kl 2 þegar Fram tekur á móti Þrótti R 
 
p.s. stelpurnar unnu Val 4-3  (VAL, sem þykjast eitthvað geta)   < Fram 4.flokkur kvenna >
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Íslandsmet á Esjunni 2.júní

 
Tökum þátt í að setja Íslandsmet á Esjunni. (Kræst, ég er svo mikil hópsál )

Þann 2 júní n.k. stendur til að setja Íslandsmet í fjölda fólks á Esjunni frá kl.08:00 – 20:00.

b

Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Jing og Jang

 
Nú get ég farið út að hjóla með bros á vor. Nú verður framsókn án Framsóknar.
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking. Jing og Jang í hæfilegur hlutföllum. Tantra
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

heimkoma

 
Bjössi bróðir er á leiðinni heim frá Danmörku. Hann gerði mistök og skráði flugmiðann óvart á nafnið Björk Guðmunds. Núna er móttökunefnd á leiðinni í Leifsstöð.
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Ný hugsun

 
Gleymum ekki að gleðjast (ég er að jafna mig á þunglyndinu frá í gær)
Lífið heldur áfram og við erum svo heppin að til er fólk sem býr til nýtt líf úr gömlum hlutum og hugsar nýjar hugsanir. Ég er ekki að tala um ríkisstjórnina. Ég er að tala um Baldur Geir Bragason listamann.
 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Náttúrulaus

 
Mig langar til að skrifa eitthvað skemmtilegt, en ég er að deyja úr þunglyndi. Framsóknar.. Sjálfstæðis.. karlrembur og það allt, alveg búin að fá nóg af þessu liði sem hangir á völdunum eins og hundur á roði.
En ef ég gengi í Framsókn.. og eyðileggði flokkinn innanfrá og flekaði maddömuna .. en mig langar bara ekkert í Jón. Kannski ef ljósin væru slökkt .. og hann myndi ekki tala … og alveg bannað að kyssa, eins og í vændishúsunum . .
 
Æ, þetta gengur ekki. Það er ekki hægt að klæmast með framsóknarflokkinn. Hann er náttúrudrepandi
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

vesen

 
Ef Sjálfstæðisflokkurinn færi í ríkisstjórn með Samfylkingunni þá þyrfti kannski að ræða pólitík
 – vesen
 
ræða pólitík við konu
 – 2x vesen
 
Er Geir enn undir hælnum á Davíð ?
 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd