Launakjör

 
Mér hefur alltaf fundist að laun ráðherra ættu að vera árangurstengd. Ef þeir keyra framúr, þá sést það á launatékkanum. Ef þeir klúðra þjónustunni, þá kemur enginn jólabónus. Björgvin Valur vill hirða eftirlaun Sturla uppí ferjuklúðrið. Ég er svo illgjörn að ég er næstum sammála honum.
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Alþjóðaviðskipti

 
Ég er (ekki) að lesa  undir próf í Alþjóðaviðskiptum. Hef sótt tíma í HR eftir vinnu undanfarinn mánuð.
Ótrúlega skemmtilegt að hlusta á Jón Orm Halldórsson. Hvar hefur maðurinn ekki búið!? þegar prófinu er lokið og hálfmaraþonið hlaupið, þá krota ég niður eitthvað af því merkilega sem JOH hefur sagt og ég heyrt. Disco ergo sum.
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Kaupþing á afmæli

 
Nú á Kaupþing 25 ára afmæli og mikið húllum-hæ.
Það stingur mig í augun að í söguágripi bankans er ekki minnst á Pétur Blöndal, framkvæmdastjóra, stofnanda og aðaleiganda Kaupþings til margra ára. Mér finnst þetta jaðra við að vera sögufölsun. Trúlega er þetta skrifað af einhverjum sem þekkir til sögu Búnaðarbankans en ekki Kaupþings.
 
b
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Áheit

Ég ætla að hlaupa hálf-maraþon (21km) í Reykjavíkurmaraþoninu 18.ágúst.
Ásta Sigurjóns sendi út rosa kúl bréf til að óska eftir áheitum á sitt hálf-maraþon og ég er að herma eftir henni.
Ég hleyp til að æfa mig fyrir Berlínarmaraþonið 30.spetember en aðallega til að ráðstafa þeim 10.500kr. sem Glitnir borgar. Peningurinn rennur til UNIFEM sem er þróunarsjóður Sameinuðu Þjóðanna fyrir konur. Sjóðurinn hefur endurtekið verið nefndur best rekni þróunarsjóðurinn innan SÞ. Er þar annars vegar horft til fjármálastjórnunar stofnunarinnar og hins vegar skilvirkni þróunarverkefna á hennar vegum. Menntun stelpna virðist skila sér betur heldur en menntun stráka, m.a. vegna þess að hún skilar sér betur til barna þeirra.
Mig langar til að safna fé til viðbótar því sem bankinn greiðir og skora því á þig að heita á mig. 
Áheitið miðast við fasta upphæð. Með þessu gefst kostur á að styrkja gott málefni og hvetja mig til dáða í leiðinni.
Meðfylgjandi linkur leiðir þig alla leið https://www.glitnir.is/Marathon/Aheit/
Ég er skráð undir nafninu Guðrún Birna Guðmundsdóttir

Margt smátt gerir eitt stórt !

Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

París

 

langar þig til Parísar  24/8 – 31/8    http://lausarvikur.blogspot.com/

Ég kemst nefnilega ekki. Er búin að lofa uppá mig kennslu, vinnu og lærdómi og kallinn er að fara til USA. Svo á að heita að ég sé að kaupa íbúð þ.a. ég hef ekki hugmynd um hvernig fjármálin standa.

Mér skilst það séu ótrúlega hagstæð tilboð hjá Iceland Express núna  :]

b

 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Flandr

 
Ég hef anað stefnulaust um síðan ég fékk þessa óskiljanlegu stjörnuspá. Nú síðast akandi um suður og austurlandið, frá Bergþórshvoli alla leið til Neskaupstaðar hvar ég datt um borð í bát sem ferjaði mig til Barðsness. Þaðan hljóp ég um mela og móa og yfir ár, aftur til Neskaupsstaðar, enda var fjölskyldan þar og vonaði vonandi að ég kæmi aftur.
Svo ókum við til Egilsstaða (nei, hinn staðinn.. Fellabæ) til að fara í heita pottinn og frísbí. Kíktum svo á uppgröfinn hennar Steinunnar að Skriðuklaustri og brenndum svo að Kárahnjúkavirkjun, syntum í lóninu og fengum okkur svo lummur í Sænautaseli og knúsuðum hvolpana. Bautinn á Akureyri gaf okkur borgara og sprungið dekk á jeppanum.
Brenndum í Skagafjörð og gistum í yndislegum litlum sumarbústað við Bakkaflöt (hefðum ekki getað tjaldað þó okkur væri borgað.. mikið .. fyrir það). Á Blönduósi skoðuðum við öll húsin sem ég hef búið í og krakkarnir æfðu sig á vefstól í textílsafninu. Baldri fannst ég eymingi að hafa aldrei synt yfir Blöndu, öll þau ár sem ég bjó þar og hann sýndi mér hvernig þetta væri gert. Hann synti þó ekki alla leið yfir.
Næst stoppuðum við á Borðeyri, sem er að verða fastur liður á ferð um landið. Við rötuðum út úr bænum. Þar næst kíktum við í heimsókn til Elínar á Grundarfirði og fengum súkkulaði köku. og svo heim …. enn veit ég ekkert hvert ég er að fara
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir

Leiðarljósið

Ég botna ekkert í stjörnuspánni minni.  Mig grunar að textinn sé (illa) þýddur úr útlensku.
Naut: Þú þarft ekki á samræðum að halda þegar jafn kröftugur samskiptaaðili og gjörðir þínar eru til staðar. Af stað! Annars seinkar viðurkenningunum.
Birt í Uncategorized | Ein athugasemd

Gjaldheimtugjaldsgjaldagjald

 
Í gamla daga, áður en ég vissi lengra nefi mínu, hringdi ég í "tollstjóra" og fékk að heyra að ég skuldaði einhver gjöld (Af tóninum að dæma mátti ég skammast mín) og hvort ég hefði ekki séð auglýsinguna í blöðunum þar sem skorað var á fólk að greiða… ég sendi helling af spurningamerkjum á binari-formi yfir símalínuna. Hversvegna fékk ég ekki greiðsluseðil ?
Vinnufélagar mínir sátu með samskonar spurningamerki svífandi yfir heddfónunum þegar þeir rýndu í liðinn "Gjaldheimugjaldsgjald" á launaseðlinum sínum.  
 
b
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Afsakið Hlé

 
besti dagskrárliður kvöldsins
 
Birt í Uncategorized | Færðu inn athugasemd

Nú ber vel í veiði

 
Allt er í kaldakoli. Laxinn gefur sig ekki og þorskurinn nennir ekki að fjölga sér fyrr en rétt áður en hann verður ellidauður.  
Hversvegna seljum við ekki sportveiðileyfi á hval og sel? ég er viss um að það er mikið öflugri business í því, en að selja hvalaskoðunarferðir til fjölskyldufólks í flíspeysum. Þá étur selurinn ekki þorskinn okkar og við fáum alvöru peningafólk í macho-veiðitúra.
Ætli ég geti ekki fengið VSK númer útá þetta ?
 
b
Birt í Uncategorized | 2 athugasemdir