-
Nýlegar færslur
Nýlegar athugasemdir
Guy Fawkes um föstudagsgetraunin Björgvin um Hvernig gengur? Birna um Áfram KR Olafur um Áfram KR Birna um Áfram KR Færslusafn
- júlí 2024
- ágúst 2010
- mars 2009
- febrúar 2009
- janúar 2009
- nóvember 2008
- október 2008
- september 2008
- ágúst 2008
- júlí 2008
- júní 2008
- maí 2008
- apríl 2008
- mars 2008
- febrúar 2008
- janúar 2008
- desember 2007
- nóvember 2007
- október 2007
- september 2007
- ágúst 2007
- júlí 2007
- júní 2007
- maí 2007
- apríl 2007
- mars 2007
- febrúar 2007
- janúar 2007
- desember 2006
- nóvember 2006
- október 2006
- september 2006
- ágúst 2006
- júlí 2006
- júní 2006
- maí 2006
- apríl 2006
- mars 2006
- febrúar 2006
- janúar 2006
- desember 2005
- nóvember 2005
- október 2005
- september 2005
- ágúst 2005
- júlí 2005
- júní 2005
- maí 2005
- apríl 2005
Flokkar
Tækni
Stjörnurnar
Stjörnuspáin í mbl.is er búin að komast að því að ég er tuddi
Naut: Heimurinn gengur ekki jafn hratt og þér þætti æskilegt. Ef þú tekur því með brosi á vör, ertu mjög þroskaður. Fyrir alla muni ekki reiðast út af því.
b
Kveðjustund
Nágranni minn er að flytja, en ég haga mér samt ekki eins og Ljenzherrann:
b
Japan og Ísland
Elsku sonar-ómyndin fer til Japans 28.desember. Það kom skelfingarsvipur á mig þegar ég fattaði hvað það er skammt undan. Þetta er alveg eins og í ævintýrunum í gamla daga .. hann fær nesti og nýja skó og svo er hann farinn útí heim, orðinn stór, stendur á eigin fótum, .. Baldur er ekki alveg laus við skelfingarsvipinn sjálfur. En jólaundirbúningurinn er á fullu gasi. Við skárum út laufabrauð í nokkrum húsum í Breiðholtinu um helgina. Lærðum að skera út Betlehemstjörnuna og útfærðum nokkur falleg Kanji-tákn. Sól, barn, himinn, kona, tré, .. Blanda af ólíkum menningarheimum. Laufabrauð og Kanji
b
Verðmæti
Ekki eru allir jafn-vitlausir sem maður þekkir. Yngvi segir:
Fólk safnar því sem skiptir ekki máli vegna þess að það getur ekki eignast það sem skiptir máli.
b
Birt í Uncategorized
2 athugasemdir
óþolandi spurningar
Þetta er ágæt spurning hjá Kolbrúnu. Hversvegna eru krakkar klæddir eftir kyni á fæðingardeildinni? Ég hafði nú ekki hugmyndaflug sjálf til að velta þessu fyrir mér. Líklega flokkast þessi vangavelta undir öfgafullan feminisma. Enda er pirrandi að horfa gagnrýnið á ríkjandi viðhorf eða hefðir. Það er erfitt að hugsa nýjar hugsanir.
Actavísdómur
Rauðar pillur frá Actavis eru 7x dýrari hér en í Danmörku. Að sögn Actavis er þetta vegna þess að markaðirnir "eru svo ólíkir". Á danska markaðinum er samkeppni.
b
Birt í Uncategorized
Ein athugasemd
Jólin koma
Prófið búið! ca. 9
Nú ætla ég að hlusta á fréttirnar á meðan ég steiki silung og sötra rauðvín. Jólin koma!
b
Birt í Uncategorized
2 athugasemdir
herra Birna
Ég skil það vel að fólk pirri sig yfir innlegginu hennar Steinunnar Valdísar þingkonu.
Hversvegna geta konur ekki heitið ráðherrar. Við erum vön því og gegnsósa af viðhorfum okkar eigin samfélags. En þegar málinu er snúið við og fólk spurt hvort karlráðherrar geti þá ekki eins heitið ráðfrúr eða ráðmaddömur, þá hljómar það ekki eins vel. Getur verið að það sé spælandi að vera kallaður kona, en eigi að vera upphefjandi að vera kölluð karl?
Ég hef heyrt stolta feður segja að stelpan þeirra sé eiginlega stráka-stelpa. Ef þeir segja að strákarnir þeirra séu stelpu-strákar, hvað þýðir það?
Annars veit ég ekki hvað ég er að blogga. Ég á að vera að lesa undir próf. En mér finnst ég vaxin uppúr því að taka próf. Ég vil bara læra og tala við lært fólk.
b
Birt í Uncategorized
Ein athugasemd
Enga steypu !
Við vinnufélagarnir vorum að ræða saman.
Þetta kom útúr því:
Við þurfum ekki mislæg gatnamót. Minnkum frekar toppana í umferðinni.
Látum skólana byrja á mismunandi tímum
Fólk vinna á mism tímum t.d. konan milli 7-3 og maðurinn á milli 10-6
börnin þurfa styttri tíma í gæslu og álagið á vegakerfið snar-minnkar
Engin mislæg gatnamót – leysum málin án steypu
b
Birt í Uncategorized
2 athugasemdir