-
Nýlegar færslur
Nýlegar athugasemdir
Guy Fawkes um föstudagsgetraunin Björgvin um Hvernig gengur? Birna um Áfram KR Olafur um Áfram KR Birna um Áfram KR Færslusafn
- júlí 2024
- ágúst 2010
- mars 2009
- febrúar 2009
- janúar 2009
- nóvember 2008
- október 2008
- september 2008
- ágúst 2008
- júlí 2008
- júní 2008
- maí 2008
- apríl 2008
- mars 2008
- febrúar 2008
- janúar 2008
- desember 2007
- nóvember 2007
- október 2007
- september 2007
- ágúst 2007
- júlí 2007
- júní 2007
- maí 2007
- apríl 2007
- mars 2007
- febrúar 2007
- janúar 2007
- desember 2006
- nóvember 2006
- október 2006
- september 2006
- ágúst 2006
- júlí 2006
- júní 2006
- maí 2006
- apríl 2006
- mars 2006
- febrúar 2006
- janúar 2006
- desember 2005
- nóvember 2005
- október 2005
- september 2005
- ágúst 2005
- júlí 2005
- júní 2005
- maí 2005
- apríl 2005
Flokkar
Tækni
Markaðurinn gerir eins og ég segi
Ég gerði í fyrra smá verkefni, þar sem ég notaði gerfigreind til að læra að versla með hlutabréf í Íslensku Kauphöllinni. Þá koma það mér á óvart hvað gengissveiflurnar eru "mannlegar" og lítið kalkúleraðar. Markaðurinn hagar sér bjánalega mikið í stíl við niðurstöður þessa verkefnis. Kannski ætti ég að nenna að selja Lífeyrissjóði Verslunarmanna þessar pælingar. Þá græði ég tvöfalt.
b
Ein stærsta uppgötvun ársins 2007
Vá!, ég er með almennilegan kennara. Ekki honum að kenna að mér gegnur námið hægt :]
Uppgötvun dr. Yngva Björnssonar valin sem ein stærsta uppgötvun ársins 2007 af the Science Magazine
Í ágúst sl. flutti hið virta vísindatímarit the Science Magazine okkur fréttir af því að búið væri að finna hina fullkomnu lausn á því að hvernig spila ætti dammtafl (e. checkers) án þess að eiga minnstu möguleika á því að tapa leiknum. Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, er hluti rannsóknarteymisins sem kom að þessu verkefni og einn af aðalhöfundum greinarinnar í Science Magazine.
Það sem vekur athygli er að the Science Magazine velur þessa uppgötvun í 10. sæti yfir stærstu uppgötvanirnar árið 2007. Þær uppgötvanir sem verma sætin fyrir ofan eru m.a. erfðamengjagreining, tímaflakk og geimgeislar.
Hægt er að lesa um dammtaflið og aðrar stórar uppgötvanir ársins 2007 á vef the Science Magazine.
The algorithms the team developed could find broad applications, others say, such as deciphering the information encoded in DNA.
b
Koja
Vitið þið um einhvern sem vill kaupa þessa koju ? Eydís er orðin unglingur og vill fara að endurhanna herbergið sitt. Hún verður sko sett í minna herbergið, nóg að hún rusli til þar. Ég hlakka til að flytja og breyta.
b
Birt í Uncategorized
2 athugasemdir
Árið 2008
Mér líst endemis vel á þetta ár. Ég ætla bara að gera skemmtilega hluti. Meira að segja BV sér framundan tóma fokkings hamingju. Ásta nýtir sér þetta bjartsýniskast hjá mér og er búin að skrá mig á æfingar hjá Hreyfingu kl 6:30 á morgnanna. Hún ætlar að koma mér í form svo ég komist með henni á Kilimanjaro .. þetta fólk drekkur of mikið. Fær allskonar hugmyndir.
Mér skilst að bókin "The Secret" fjalli um að með því að beita hugarorkunni þá stýri maður framvindunni. Ef ég fókusa á Marilyn Monroe..þá verð ég geðveikt sæt, en það er kannski ekki sniðugt, hún er dauð. Ég einblíni frekar á Jóakim Aðalönd til að rétta við fjárhaginn eftir skólasetuna og fasteignabraskið.
$
Árið 2008 er hlaupaár. Ég ætla að hlaupa
Birt í Uncategorized
Ein athugasemd
Híði
Nú hef ég birna, fylgt eðlinu og legið í híði á meðan vindurinn blés og frostið beit. Ég stóð mig vel.
b
Afsláttur af uppeldi
Hundaeigendur fá afslátt af gjöldum ef þeir hafa farið með hundana sína á hlýðni námskeið. Hvernig væri að gefa foreldrum afslátt á leikskólagjöldum ef þeir sækja uppeldisnámskeið? og hvernig væri að kenna grunnatriði barnauppeldis í 10.bekk? Það væri gagnlegra en margt annað.
voff
Baldur er kominn til Japans
Ég sit hérna heima og er búin að naga næstum allar neglurnar. Ég skutlaði Baldri og Pétri útá völl í gærmorgun og loksins fyrir 5 mínútum fékk ég sms. Þeir eru komnir heilu og höldnu á hótel í Japan. Símarnir virka ekki, en hótelið býr yfir neti, en ég sé þá ekki á msn. Fyrsta áfanga er náð. Allir lifandi og meira að segja ég við sæmilega heilsu. Baldur ætlar að setja upp bloggsíðu. "Sleepless í Japan" eða "Made in Japan" eða eitthvað slíkt .. kemur í ljós. Ég set linkinn þá inná síðuna mína. Hann er a.m.k. í heilu lagi. Ég get haldið áfram að narta í laufabrauð og pússla.
b
Birt í Uncategorized
Ein athugasemd
klikkað lið
Naut: Ástvinir þínir elska klikkaðar hugmyndir eins og þú. Engar efasemdir! Styddu allt sem þeim dettur í hug, líka þær hugmyndir sem þú skilur ekki alveg.
ég hlakka til að heyra hvaða hugmyndir þetta eru sem liggja í loftinu
b
Birt í Uncategorized
2 athugasemdir
Handavinna
Baldur says:
Manu cyclum Fortunae vertam.
birna says:
I do not know which way to turn.
Yngvi says:
Gæfan fer í maníska hringi
Baldur says:
manu = með höndinni (sbr. Manicure)
verto = ég sný -> vertam = ég mun snúa
birna says:
þú munt hand-snúa gæfuhjólinu ef það snýst ekki þér í vil
Baldur says:
Já !
Manu cyclum Fortunae vertam.
birna says:
I do not know which way to turn.
Yngvi says:
Gæfan fer í maníska hringi
Baldur says:
manu = með höndinni (sbr. Manicure)
verto = ég sný -> vertam = ég mun snúa
birna says:
þú munt hand-snúa gæfuhjólinu ef það snýst ekki þér í vil
Baldur says:
Já !
Birt í Uncategorized
2 athugasemdir
Erfiður aldur
Unglingaskólakennarinn austur á landi er teiknibólugrafinn
b