Ég ræð !

 
Ræður Landsvirkun þessu? Hún er  í viðræðum við 12 erlenda aðila  um sölu á raforku. Er til næg raforka? Ræður Landsvirkjun því á hvaða verði hún er seld? Stjórnar Landsvirkjun þróun atvinnuvega á Íslandi? Álver vs. netþjónabú. Hefur enginn annar neitt um það að segja? Hvað með atvinnuvegaráðuneyti ? Umhverfisráðuneyti? Fjármálaráðuneyti – já eða jafnvel við, fólkið sem býr hérna og Á landið og orkuna.
Það held ég nú!   
Annars hef ég engann tíma til að rífast. Ég á eftir að fara yfir 50 verkefni og pakka fyrir Berlínarferðina (úff, maraþon stress í maganum) og vinna á morgun og svo þarf ég að skila forritunarverkefni næstum strax eftir að ég kem heim aftur.  Já, og finna útúr því hvað ég geri við Eydísi á meðan ég er í Berlín. Pétur er líka einhversstaðar á þvælingi.
 
Ég setti inn þessa fallegu mynd af hindberjum í skál til að fá smá kyrrð og fegurð.
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

Færðu inn athugasemd