Hvannadalshnjúkur

 
Ég gekk á Hvannadalshnjúk á laugardaginn með Ferðafélagi Íslands. Sandfellsleiðina (læt eins og ég þekki einhverja aðra leið)

Nýjar græjur (alvöru ferð): 

    • Ísexi,
    • Kvennbroddar (kommon! ég er feministi),
    • göngubelti 
    • gasalega lekker göngupeysa sem meðtekur ekki svitalykt
Við lögðum af stað uppúr kl 5 í dásamlegu veðri. Bjart og dálítið kalt, sólin nýkomin á loft. Hnjúkinn bar við himinn og útsýnið var mikilfenglegt* lengi framanaf .. allan tímann fannst mér við vera hrossahópur, stigum upp brekkuna, nudd í bakpokum og spark í stein, másandi.
Í 400 metrum áðum við og fylltum á vatnsbrúsa í fjallalæk. Dagurinn ennþá glænýr, blóðið komið af stað og flíspeysunni troðið í bakpokann.
í 900 metrum dró ský fyrir sólu. Satt best að segja var ég mjög fegin, gat tekið ofan skíðagleraugun og hætt að blóta ullarnærbuxunum. Ég veit heldur ekki hvernig við hefðum litið út ef sólin hefði skinið allan daginn. Ásta var okkar sólarvörn og lánaði okkur öllum krem með 50x vörn, samt erum við komin með bændabrúnku og freknur.
Í 1100 metrum skipti hópurinn sér á línur. Eftir það gengum við í kippum bundin saman eins og leikskólabörn. You never walk alone. Jafnvel grandvarasta fólk notaði óprenthæf orð um línuna í lok dags. Aftasti maður hjá okkur, Þórarinn afturendi, lenti í vandræðum og fékk krampa í fótleggina hvað eftir annað. Dótinu hans var dreift í aðra poka og hann fóðraður á orkudrykkjum og glúkósa. Sem betur fer náði hann sér á strik og komst alla leið.
Í 1500 metrum var komin él og fólk týndi á sig fleiri peysur, nema Guðbjartur pabbi hennar Völu. Hann gekk berhentur í bol. Ég breyttist í ömmu mína og sagði honum að fara nú í vettlinga eða flíspeysu, en honum leið vel. Sumir eru bara meira hot en aðrir.
Síðasta spölinn köstuðum við af okkur bakpokum og festum á okkur broddana og notuðum ísaxir okkur til halds og trausts. Nú var ferðin orðin "fullorðins". Við kjöguðum áfram, barin í framan af frosti og él en sáum varla fremsta mann á línunni. 
Á toppnum var skyggnið um 3 metrar. Frábært að vera komin á toppinn! Gangan upp var léttari en ég hafði ímyndað mér og tíminn leið hratt. Ég vonast eftir að fá fljótlega sendar myndir af mér með hélað hár. Myndirnar svo sem sanna ekki neitt. Hefðu getað verið teknar í hvaða snjóskafli sem er.
 
Nú var ég búin að borða mest allan matinn og nota öll fötin .. og komið að því að ganga á brauðfótum þessa sömu leið til baka. Merkilegt hvað hún var mikið lengri … en ég tók þessu eins og hverri annarri fæðingu. Nota alla  þolinmæðina og þrauka í trausti þess að þetta muni taka enda. Næst tek ég með mér skíði. Jökullinn er dásamlega falleg skíðabrekka alveg niður í 1100 metra. Einn ferðafélaginn sagði reyndar "Við gengum á hæsta fjall Íslands og svo er fólk hissa á það sé langt niður"
Við gengum svo að segja alveg frá sólarupprás til sólarlags. Ég held að mín lína hafi verið tæpa 16 tíma á göngu.
Þetta var frábær ferð. Ásta, Svanberg og Guðbjartur eru mjög góðir ferðafélagar. Við vorum sammála um að við værum ekkert þreyttari en eftir venjulegan Fimmvörðuháls en mikið vorum við ljót þegar við vöknuðum daginn eftir, sólbrennd og þrútin.
Það er svo mikið fleira í kringum svona ferð en bara gangan. Við Ásta fengum far hjá Svanberg. Ég dormaði í aftursætinu. Suðurlandið er fallegt. Eyjafjöll, jöklasýn, fossar og skoppandi lömb útum allt. Hamborari í Vík í Mýrdal (hafið þið tekið eftir því að Vík í Mýrdal er alls ekkert í Mýrdal?)
Svo fór ég á Esjuna í gær, uppað læk og fann ekki fyrir þreytu. Mér finnst það með ólíkindum. Við Ásta erum komnar með geðveika kúlurassa og mölum megrunarkappið
 
b
 
*ég varð að nota langt orð, "voða voða flott" var ekki nógu lýsandi
Óþekkt's avatar

About birnabirna

Mostly harmless
Þessi færsla var birt þann Uncategorized. Bókamerkið varanlega slóð.

5 Responses to Hvannadalshnjúkur

  1. Óþekkt's avatar Unknown skrifar:

    Dugleg stúlka, til hamingju! … þetta á maður eftir, passar í dæmið á næsta ári. 
     
    Kveðja Halli

  2. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

    Takk, takk, bráðum verð ég komin í nógu gott form til að hlaupa með ykkur
     

  3. Óþekkt's avatar Dagný Blöndal skrifar:

    Congratz… :]
    Svipaður veður síðustu helgi þegar við fórum upp Hnjúkinn,
    en við vorum heppin með veðrið á niðurleið, sól og fanta flott útsýni.
     
    Kveðja, Dagný

  4. Óþekkt's avatar Birna skrifar:

    takk Dagný :]
    þú ert nú meiri fjallageitin. Ertu langt komin með bókina "Gögnuleiðir á 151 tind" ?
     

  5. Óþekkt's avatar Dagný Blöndal skrifar:

    hehehe rétt að byrja á henni 😉
    stefni á Eyjafjallajökul næsta laugardag og í þetta skipti ætla ég ekki að GLEYMA sólavörninni !

Færðu inn athugasemd