Ég held ég sé komin með vinnu í sumar eða lengur. Hjá Kaupþingi. Ég gleymdi reyndar að segja honum að ég vann hjá Kaupþingi ’88 þegar fyrirtækið var kallað okurlánafyrirtæki. Núna lána þeir út á sömu vöxtum og heitir banki.
Ég held ég hafi nefnt of lága tölu. Hann var fljótur að samþykkja. Mitt framlag til launamunar kynjanna.
b
Það er auðvitað bara gott á þig fyrir að vilja vinna hjá Kappaflingthing.
Æ, þú veist hvað ég á erfitt með að segja nei við karlmenn ..