Mér finnst mikilvægast að halda fast við hugsjónirnar vinna vel saman að betra þjóðfélagi
Stóru orðin eru samábyrgð og framsókn (sem á tæplega við um Framsókn.. )
Mér finnst mikilvægast að fá til forystu fólk sem ég treysti til að stefna að betra samfélagi. Ég er t.d. hrifin af Jónínu Bjartmarz í Framsókn. en mér finnst næstum flestir aðrir í flokknum hugsa meira um að moka undir sinn eigin rass en bæta samfélagið. Halda völdum sama hvaða á dynur. Neita að horfast í augu við að breytinga er þörf í landbúnaðarkerfinu. Gleyma samábyrgðinni. Segja eitthvað hljómfagurt í sjónvarpinu án þess að hafa ástríðu til framfara. Láta hvern sem er borga sig í gegnum kosningabaráttuna á síðustu stundu. Hvar eru heilindin? Þetta er ekki fallið til virðingar. Ég er svo sem ekkert endilega að tala um Framsóknarflokkinn. Framsóknarfólk er í öllum flokkum.
Síðast í gær var Hjálmar Árnason ráðinn sem skólastjóri yfir nýja háskólabæinn við Keflavík. Mér finnst það frábær hugmynd að nýta "Völlinn" sem háskólasamfélag. En hversvegna að skemma góða hugmynd með því að ráða nóboddý til að stjórna? Við eigum fullt af frábæru fólki. Nú síðast var t.d. Svafa Grönfelt ráðin sem rektor Háskólans í Reykjavík og hún er endurmeta alla stefnu skólans og styrkja hann á allan hátt. Hann var samt vel rekinn fyrir! Lengi má gott bæta. Háskólinn í Reykjavík rokkar feitt.
Ég er mótfallin því að menntamál séu mæld í "fjárveitingum". Það skiptir meira máli hversu stórt hlutfall prófessoranna er sofandi í vinnunni. Kannski þarf að reka alla kennarana á 7 ára fresti þeim til upplyftingar. Metnaður og framkvæmdasemi. Árangur!
Örfáir nemendur undir stjórn frábærs kennara í HR eru heimsmeistarar í leit í myndagagnagrunnum. Þeir eru nú að sækja um einkaleyfi á sinni aðferð og eru að útvíkka hana til að leita í vídeóum. Þetta er árangur.
Örfáir nemendur undir stjórn frábærs kennara í HR eru heimsmeistarar í leit í myndagagnagrunnum. Þeir eru nú að sækja um einkaleyfi á sinni aðferð og eru að útvíkka hana til að leita í vídeóum. Þetta er árangur.
Sama á við um Grunnskólana. Ég vil að sérhver skóli fái frelsi til að leita betri leiða til að mennta sína nemendur og að foreldrar fái ávísun á nám í 1 ár í senn sem þeir ráða hvar þeir innleysa. Þá væri komin einhverskonar samkeppni milli skólanna og umræða um markmið og árangur yrði almennari.
Það er ekki nóg að pólitíkusar hendi milljón og milljón í HÍ því þeir hafi frétt að menntun skili sér í mannauði. Þeir, nei ég meina ÞAU, muna ekki að það eru fleiri háskólar á landinu. Það skiptir heldur engu hvort góð verk spretta úr háskólasamfélögunum eða annarsstaðar í samfélaginu. Allir sem vinna gott verk ættu að geta, án mikilla hindrana af hálfu hins opinbera, komið sinni hugmynd á koppinn. Ég er ekki farin að tala um að allir eigi að eiga aðgang að fjármagni. Bara að lágmarka hindranir. Konan sem stofnaði Kaffitár þurfti yfir hundrað leyfisbréf og uppákvittanir til að geta selt kaffisopa á Laugarveginum. Samt er hún ekki með vínveitingaleyfi! Þá hefðu uppákvittanirnar orðið enn fleiri. Svona reglugerðafargan virkar eins og sandur í samfélagsvélina.
Ég er að tala út og suður.. jæja, hvað um það, sæki mér annan kaffibolla
b