Jæja, þjóðhagfræðiprófinu lokið. Þetta var rosa stuð. 2 ritgerðaspurningar og ég teiknaði og skrifaði og skrifaði ( og skrifaði (og skrifaði)). Ég veit ekki alveg hvernig mér gekk að koma nýfenginni þekkingu á blaðið. Ég veit hvað ég skrifaði, en ekki hvað ég gleymdi að skrifa. Ég lenti í tímaþröng með síðasta atriðið varðandi Solow líkanið sem er tattóverað á heilabörkinn. En hvað um það, þetta sleppur. Skyldi ég geta fengið aðra undanþágu og tekið framhaldskúrsinn? Verð að fá mér de-caff til að ná mér niður
Beta baun leggur til að Hafnfirðingar stofni Álfver og framleiði Álfpappír